Viðvera SI
Mánudaginn 29 september verða til viðtals Friðrik Á Ólafsson forstöðumaður byggingarsviðs og Ferdinand Hansen verkefnastjóri gæðastjórnunar frá kl 11:00 til kl 14:30
Eins og síðast þegar að Friðrik kom i heimsók til okkar þá verður súpa í boði milli kl 11:30 til 13:30 fyrir félagsmenn.
Fyrirhugað er að vera með mánaðarlega viðveru og verður hún alla jafnan síðasta mánudag í hverjum mánuði og verður það auglýst hér á síðunni okkar og með tölvupósti til félagsmanna.
Við í stjórn MBS hvetjum alla til að mæta og spjalla við þá félaga.
Til glöggvunar þá er Ferdinand sá aðili sem leiðbeinir mönnum með uppsetningu og innleiðingu á gæðakerfum
Einnig viljum við minna á að Mannvirkjastofnun og Samtök Iðnaðarins standa fyrir kynningarfundum um innleiðingu gæðastjórnunarkerfa í byggingariðnaði í og verða hér með kynningu á Flughótelinu kl 15:00 þann29 september.