Vangaveltur formanns settar inn aftur

Forsíða / Fréttir
10.06.2007

Vangaveltur formanns settar inn aftur


Iðnmeistarar, ég vil reifa vangaveltum mínum, hvort ekki séu hættumerki á lofti vegna of lítils eftirlits með byggingarvinnu sem og að um sé að ræða marga ófaglærða menn sem stunda þessa vinnu og fá síðan einhverja til að ,, leppa“ fyrirtækin sem þarna eru víða að undirbjóða góð alvöru fyrirtæki.
Mér hefur verið tjáð að nú þegar sé í gangi ójafn leikur manna sem eru að  undirbjóða löggilta iðnaðarmenn og er ég  þá ekki  eingöngu að fjalla um þá landa okkar sem ávallt skjóta upp kollinum og undirbjóða þá sem lærðir eru og starfa samkvæmt þeim reglum um ábyrgð og vönduð vinnubrögð sem hæfir góðum fyrirtækjum.  Hér á ég við óhefta,, innrás“ vinnuafls frá evrópska efnahagssvæðinu, aðila sem vitað er að  margir hverjir eru réttindalausir og eru hér í tugþúsunda tali og eru nú komnir í samkeppni við löggilt byggingafyritæki og sjálfstæða iðnmeistara, en að sögn eru þeir margir m.a. í tvöfaldri vinnu, vinna hjá fyrirtækjum að deginum og síðan í ,,hinni vinnunni“ utan við hinn hefðbundna vinnudag og hafa jafnvel aðra vinnukrafta óskráða  í vinnu, en um þetta hafa menn sem eru að byggja  skrafað og eru þeir hissa á að við stöðvum þetta ekki og hvernig standi á að hægt sé  að taka að sér  að flísaleggja fermetrinn á  1.550 -  og það á kvöldin og um helgar. En það var einmitt dæmið sem  einn húsbyggjandinn sagði mér frá og var hissa á að ekkert virðist vera fylgst með þessum starfsmönnum.

Því  má spyrja hvað verður um okkar löggiltu meistararéttindi í ljósi samkeppninnar og lítils eftirlits .  Við vitum það allir að ekki verður góðærið  hér að eilífu. Dögum við uppi eins  farmannastéttin eða skipasmiðirnir? 
 
Er það hagur okkar  iðnaðarmanna að  eftirlit sé  ekki meira en raun ber vitni með nýbyggingum  og viðgerðum á byggingastað?  Það er ekki á móti mælt að byggingareglugerðin er víða brotin varðandi uppáskriftir iðnmeistara í mörgum sveitarfélögum landsins.
Hvað geta heildarsamtökin gert til að  sporna við þessum málum spyrja menn, tel ég að þarna þurfi að taka til hendinni og verja með því  þá hagsmuni fagmeistara sem byggingalögin kveða á um.

Erum við virkilega það máttvana, að við getum ekki komið í veg fyrir að hunsuð sé uppáskrift iðnmeistara í löggiltum iðngreinum, þrátt fyrir ákvæði um það í lögum.
Ljóst er að víða er pottur brotinn. Hér  á okkar svæði vil ég séstaklega benda á málara og dúklagningameistara, en þrátt fyrir ákvæði í lögunum, er ekki farið eftir  því  eins og þyrfti .

Stöndum við sjálfir nægilega saman?
Ef  fyrirtækin fá undirverktaka til að vinna fyrir sig, án þess að  ávallt sé um  að ræða útskrifaða fagmenn, eins og ég hef ma. fengið upplýsingar um, þá er ekki furða  þótt að t.d.  uppmælingin sé á undanhaldi hér. 

Verður röðin næst komin að húsasmiðum og pípulagningameisturum, erum við búnir að gleyma skipasmiðunum, þar sem einmitt undirboð erlendis frá eru að ganga að  stéttinni dauðri. 

Ég einfaldlega spyr  ykkur kæru meistarar, þurfum við ekki að standa þéttar saman og taka á þessu af alvöru.

Væri ekki ráð að versla aðeins við útlærðra iðnaðarmenn sem vilja og ætla að bera ábyrgð á sinni vinnu.

Ef  iðnmeistarar standa ekki betur saman en þetta, þá tel ég að mjög erfitt  sé fyrir þá að  sporna við óheftu flæði ófaglærðs vinnuafls sem kemur inn á markaðinn frá  Evrópu og undirbýður þá sem reka sín fyrirtæki eftir viðtekinni almennri fagmennsku, í ljósi þess litla eftirlits  á byggingarstað sem á sér stað víða.

 Leggjum  þunga áherslu á eftirlitið, þeir sem fylgjast með þessu sjá að í þenslu þeirri sem nú ríkir og hefur ríkt, er mikið að og  þegar til lengri tíma er litið tel ég að ímynd  á okkur sem
fagmeisturum  skaðist og við fáum ekki skilning  almennings sem skildi og undan stéttinni fjari. 

Réttindi okkar eru að veði. 

Kveðja og sýnum nú samstöðu kæru meistarar.

Kristján Kristjánsson formaður MBS