Skoðið idan.is
Völundarverk-Reykjavík í samvinnu við Vinnumálastofnun (VMST), Minjasafn Reykjavíkur og IÐUNA Fræðslusetur auglýsir eftir húsasmiðum og arkitektum í átaksverkefni um endurgerð eldri húsa í Reykjavík. Gert er ráð fyrir að þátttakendur séu skráðir atvinnuleitendur hjá Vinnumálastofnun. Verkefnið sjálft er tvíþætt. Annars vegar undirbúningsnámskeið u.þ.b 1 mánuður sem hefst í október og hins vegar tímabundin störf þátttakenda á byggingarstað/teiknistofu að því loknu í 2-5 mánuði. Umsóknarfrestur er til 21. september nk. Sjá nánar á www.idan.is
Húsverndarstofan er til húsa á Árbæjarsafni, neðst á safnsvæðinu.
FÉLAGSMENN Í ATVINNULEIT
Fyrstu skrefin í atvinnuleysi
Fyrsta verkefnið við uppsögn er að skrá sig hjá Vinnumálastofnun og
sækja um atvinnuleysisbætur. Vinnumálastofnun höfuðborgarsvæðisins
er á Engjateigi 11, 105 Reykjavík.
Vefsíða Vinnumálastofnunar er www.vmst.is, sími 515-4850.
Næsta skref er að setja sig í samband við IÐUNA fræðslusetur.
Auk upplýsinga í námsvísi þessum er á heimasíðu IÐUNNAR yfirlit
yfir öll námskeið sem eru í boði á hverri önn. Öllum er heimilt að
sækja námskeiðin, óháð stöðu á vinnumarkaði. Nánari upplýsingar
um kostnað vegna námskeiðsþátttöku er hægt að fá í síma 590-6400
eða með tölvupósti á idan@idan.is
Vakin er sérstök athygli á eftirfarandi námskeiðum:
• Tölvur ekkert mál - grunnnámskeið
• Word ritvinnsla