Nýsköpunarþing í Reykjanesbæ

Forsíða / Fréttir
09.10.2013

Nýsköpunarþing í Reykjanesbæ

Nýsköpunarþingí Reykjanesbæ – Fullnýting til framtíðar

verður haldið í Andrewsleikhúsinu á Ásbrú fimmtudaginn 10. október frá kl. 17:00 – 19:00. BláiDemanturinn (Blue Diamond) hefur í samvinnu við sveitarfélögin á Suðurnesjum,Nýsköpunarmiðstöð Íslands, KADECO, Hekluna, Sjávarklasann og Jarðvarmaklasannunnið að undirbúningi þingsins. Þá hafa einnig fyrirtæki á borð við HS Orku, HSVeitur, Keilir, Eimskip, ISAVIA, Íslandsstofu, Icelandair og IGS komið aðundirbúningi.