Málþing um byggingariðnaðinn 11.nóv kl. 9-17

Forsíða / Fréttir
07.11.2010

Málþing um byggingariðnaðinn 11.nóv kl. 9-17

Málþing áGrand Hótel Reykjavík

Fimmtudaginn 11. nóvember 2010, klukkan 9 – 17.

BETRI BYGGЗFRÁ ÓVISSU TIL ÁRANGURS

Innritun á staðnum klukkan 8:00—8:50 og málþingið hefst stundvíslega          klukkan 9:00. Tekið verður við skráningum á skrifstofu Arkitektafélags Íslands, á vef félagsins www.ai.is, í síma 551 1465 og á netfanginu ai@ai.is. Vænst er mikillar þátttöku og því mikilvægt að skrá sig tímanlega. Ráðstefnugjald er 6000 krónur sem greiðist við skráningu. Innifalið er hádegisverður og hressing í hléum.

 

Finnski arkitektinn Vesa Juola verður sérstakur gestur  á málþinginu og dagskráin er fjölbreytt og efnismikil.

 

Fundarstjórn er í höndum Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, forseta borgarstjórnar og Hjálmars Sveinssonar, stjórnarformanns Faxaflóahafna.

Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, flytur ávarp.

Erindi flytja þau Halla Tómasdóttir, Ríkharður Kristjánsson, Guðmundur R. Árnason, Guðjón Steinsson, Bjarni Már Gylfason, Vesa Jupola,  Salvör Nordal, Guðmundur Andri Thorsson, Kristín Þorleifsdóttir, Þorkell Sigurlaugsson, Friðrik Ágúst Ólafsson, Sigríður Björk Jónsdóttir, Halldóra Vífilsdóttir og Hrólfur Karl Cela.

 

Að ráðstefnunni standa Arkitektafélag Íslands, Byggingafræðingafélag Íslands, Félag húsgagna- og innanhússarkitekta, Félag byggingafulltrúa,

Félag íslenskra landslagsarkitekta, Meistarasamband byggingamanna, Samtök iðnaðarins, Skipulagsfræðingafélag Íslands, Tæknifræðingafélag Íslands og Verkfræðingafélag Íslands.

 

Fréttabréfi um dagskrá ráðstefnunnar verður dreift á netinu og á ráðstefnunni.