Auglýsingar í Víkurfréttum

Forsíða / Fréttir
16.10.2009

Auglýsingar í Víkurfréttum

Félagar góðir vinsamlegast athugið hvort netföng og aðrar upplýsingar um ykkur á heimasíðunni  séu réttar.

Það munu birtast auglýsingar einu sinni í mánuði í Víkurfréttum þar sem vísað er á heimasíðuna varðandi  fagmeistara.

Þá verður nafnalisti allra sendur með bréfinu sem fer á umráðamenn með fasteignum á Suðurnesjum, samber bréf samþykkt á félagsfundi 14okt.sl.

Það er nauðsynlegt að þið fylgist með þessu og ekki gleyma að láta mig vita ef þið breytið um netföng, símafyrirtæki og þ.h. 

Vek einnig athygli á að þið gerið eða látið gera fyrir ykkur litlar heimasíður sem þá  verður vísað á um leið og klikkað er á uppl. um ykkur, en sumar þeirra eru ókeypis og vísa ég  á síðu Grétars varðandi nánari uppl

 

Fyrir þá sem ekki vita þá smellið þið á nafnið ykkar í nánar og þá opnast netfangið ( á bakvið þá mynd sem er á skjánum, ef þið hafið stillt á  fullan skjá, ella sjáið þið netfangið strax. Til að stækka myndir þá smellið á myndina  í ,,meira"og þá stækkar hún )

 

.